Snjallmælavæðing rafmagnsmæla í Vogum

Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að setja upp snjallmæla hjá viðskiptavinum.

Snjallmælar eru búnir fjaraflestrarbúnaði og þegar búið er að setja þá upp, og þeir komnir í samband við upplýsingakerfi HS Veitna, byggir reikningagerð á raun notkun hverju sinni, í stað álestra og áætlana áður.

Áætlað er að mælaskiptum og uppsetningu upplýsingakerfisins verði að fullu lokið á veitusvæðum í árslok 2022.
Bent er á að þó viðskiptavinir séu komnir með snjallmæli er ekki sjálfgefið að hægt sé að greiða strax fyrir raun notkun, því mögulegt er að uppsetning upplýsingarkerfis sé ekki tilbúin.

Mælaskiptin eru unnin af starfsmönnum HS Veitna dagvinnutíma. Starfsmenn sem vinna við mælaskiptin bera vinnustaðaskírteini og koma á merktum bíl.

Það er von okkar að viðskiptavinir taki vel á móti mælasetjurum og að aðgengi að mælum verði gott.

Nánari upplýsingar varðandi mælaskiptin eru á heimasíðu fyrirtækisins og hægt að finna HÉR
Hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið hsveitur@hsveitur.is.
Einnig eru veittar upplýsingar í þjónustuveri okkar í síma 422 5200.