Snjallvæðing rafmagnsmæla í Vogum.

Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að setja upp svokallaða snjallmæla hjá viðskiptavinum.


Snjallmælar eru búnir fjaraflestrarbúnaði og þegar búið er að setja þá upp og þeir komnir í samband við upplýsingakerfi HS Veitna, byggir reikningagerð á raun notkun hverju sinni, í stað álestra og áætlana áður.


Áætlað er að mælaskiptum og uppsetningu upplýsingakerfisins verði að fullu lokið á veitusvæðum í árslok 2022.


Bent er á að þó viðskiptavinir séu komnir með snjallmæli er ekki sjálfgefið að hægt sé að greiða strax fyrir raun notkun, því mögulegt er að uppsetning upplýsingarkerfis sé ekki tilbúin. Mælaskiptin eru unnin af starfsmönnum HS Veitna.


Starfsmenn sem vinna við mælaskiptin bera vinnustaðaskírteini og koma á merktum bíl.
Nánari upplýsingar varðandi mælaskiptin eru á heimasíðu fyrirtækisins og hægt að finna HÉR


Hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið hsveitur@hsveitur.is.
Einnig eru veittar upplýsingar í þjónustuveri okkar í síma 422 5200