Rafmagn komið aftur á Grindavík þann 19. janúar

Rafmagn fór af Grindavík kl. 07:15 í morgun vegna bilunar í stofnstreng sem liggur undir hrauni í kjölfar eldgossins um helgina.  Undirbúningur hófst strax við að koma á rafmagni með varaaflsvél frá Landsneti og á sama tíma hófst bilanagreining á stofnstrengjunum frá Svartsengi til Grindavíkur.  Um er að ræða tvo strengi sem liggja samsíða og við mælingar kom í ljós að hinn strengurinn reyndist í lagi og tókst með honum að koma rafmagni á bæinn kl. 11:45.

 

Óljóst er hversu lengi strengurinn muni virka undir heitu hrauninu og verður því áfram unnið að því að leggja loftlínu yfir hraunið sem varaleið. Ef strengurinn bilar áður en loftlínan verður tilbúin munu varaaflsvélar frá Landsneti sjá bænum fyrir rafmagni.