Ný starfsstöð Hafnarfirði

 

Starfsemi HS Veitna í Hafnarfirði hefur um langt árabil verið á tveimur stöðum. Skrifstofu- og lagerhúsnæðið hefur verið á Bæjarhrauni 14 en verkstæðishúsnæði á Hjallahrauni 4. Húsnæðið að Bæjarhrauni 14 hentaði orðið illa og var starfsemin búin að sprengja utan af sér, sérstaklega  aðstöðu birgðageymslu og aðgengi að henni auk þess sem bílastæði voru af skornum skammti. Ný starfsstöð sameinar starfsemina á einum stað og bætir aðgengi og starfsaðstöðu til muna.

 

Lóðin að Selhellu ásamt meðfylgjandi gatnagerðargjöldum og ákveðinni jarðvinnu var keypt í september 2018 og í kjölfarið hófst hönnunarvinna, annar undirbúningur og sökklagerð. Eiginleg bygging hússins hófst í lok árs 2019.

 

Arkitektar hússins voru GP arkitektar en TÓV verkfræðistofa annaðist burðarvirki og tilheyrandi. VSÓ ráðgjöf sá um eftirlit á byggingartíma.

 

Byggingarverktaki hússins var Siggi og Jón ehf, jarðvinnu annaðist Fjarðargrjót ehf. en stálgrind hússins er frá Astron.

 

Lager og verkstæði eru samtals 744 m2 með 7,7 m. lofthæð. Skrifstofa og starfsmannaaðstaða er 442 m2 með 4,0 m. lofthæð. Milliloft eru 280 m2 eða samtals 1.366 m2.

 

Heildar byggingarkostnaður hússins án lóðar, gatnagerðargjalda og virðisaukaskatts en með ákveðnum innanstokksmunum er röskar 500 m.kr.

 

Hjá HS Veitum starfa 95 manns á fjórum starfsstöðvum sem eru auk Hafnarfjarðar í Reykjanesbæ, í Vestmanneyjum og í Árborg. Í Hafnarfirði hafa 14 starfsmenn fasta starfsstöð auk þess sem starfsfólk annarra starfsstöðva hefur þar aðstöðu í ákveðnum verkefnum.

 

Viðskiptavinir HS Veitna í Hafnarfirði og hluta Garðabæjar eru um 32 þúsund.

 

Myndefni:

HÉR og HÉR