Lokað fyrir heitt vatn í Grindavík á meðan hjáveitulögn verður tengd

Eftir að í ljós kom að hitaveitulögn sem liggur undir hrauni frá því í eldgosinu þann 14. janúar sl. reyndist vera skemmd hafa HS Veitur unnið að úrbótum í samvinnu við Almannavarnir og verktaka. Skemmdirnar á lögninni valda því að hátt í helmingur af því heita vatni sem sent er frá orkuverinu í Svartsengi tapast á leiðinni til Grindavíkur með þeim afleiðingum að erfitt hefur reynst að ná upp þrýstingi í hitaveitunni í bænum.

 

Í fyrstu var gerð tilraun til að grafa niður að lögninni í gegnum heitt hraunið þar sem talið er að lekinn sé en þegar það ekki tókst var ráðist í vinnu við að koma fyrir hjáveitu hitaveitulögn yfir nýja hraunið. Hafa framkvæmdir gengið vel og er áætlað að tengja lögnina við hitaveituna í Grindavík á morgun, laugardag 24. febrúar. Vegna þeirrar framkvæmdar verður lokað fyrir heitt vatn í Grindavík frá kl. 9 og þar til framkvæmdum líkur. Gera má ráð fyrir að heitt vatn verði komið aftur á annað kvöld og að lítill þrýstingur verði áfram á hitaveitunni í Grindavík fram á mánudag.

 

Myndin var tekin við framkvæmdir á hjáveitulögninni fimmtudaginn 22. febrúar