Hitaveitan í gang í dag

Nú er viðgerð lokið á hitaveituæðinni frá Svartsengi og heitt vatn farið að streyma í tankana á Fitjum. Starfsmenn HS Veitna undirbúa nú áhleypingu inn á kerfið og geta viðskiptavinir vænst þess að heitt vatn fari að streyma á næstu klukkustundum.

 

Starfsmenn HS Veitna munu vinna þrotlaust að því að koma heitu vatni á allt svæðið á næsta sólahring.

 

Húseigendur eru hvattir til að vitja eigna sinna meðan hitaveitan kemst í gang.

 

Frekari upplýsingar munu berast frá HS Veitum og eru viðskiptavinir hvattir til að fylgjast vel með.