Heitt vatn og rafmagn komið á Grindavík að mestu

Í dag, 16. janúar 2024, hafa HS Veitur unnið að því í samstarfi við Almannavarnir að koma á heitu vatni og rafmagni á austurhluta Grindavíkur. Vegna hættulegra aðstæðna var verkið unnið með aðstoð frá sérsveit ríkislögreglustjóra og annarra sérþjálfaðra viðbragðsaðila og miðuðu aðgerðirnar að því að koma innviðum sem eru heilir aftur í virkni.

 

Aðgerðin gekk vel en ljóst er að vegna skemmda á veitukerfum í bænum var ekki hægt að koma rafmagni og heitu vatni á öll hús í Grindavík.  Í einhverjum tilfellum getur verið að hitakerfi hússins virki ekki þó hús sé að fá til sín heitt vatn. Af þeirri ástæðu hafa Almannavarnir fengið til liðs við sig viðbragssveit pípulagningamanna til að kanna ástand hitakerfa fasteigna á skilgreindum svæðum í bænum.