Förum sparlega með heita vatnið!

Nú þegar heitt vatn er farið að renna aftur biðlum við til íbúa sem komnir eru með heitt vatn að fara sparlega með það á meðan við byggjum upp þrýsting á kerfinu, þannig að öll svæði fái að njóta heita vatnsins sem fyrst.
Það er eðlilegt að það taki tíma fyrir húsin að hitna og gott að leyfa því að gerast í rólegheitunum.

Verði viðskiptavinur var við leka, eða veit nú þegar af frostskemmdum í lögnum, er mikilvægt að loka fyrir aðalinntakið við hitaveitugrinda, og tilkynna til þjónustuvers HS Veitna í síma 422-5200 eða á netfangið hsveitur@hsveitur.is.
Píparasveit Almannavarna og starfsfólk HS Veitna munu aðstoða viðskiptavini eftir bestu getu í dag og næstu daga. HS Veitur bera ábyrgð á lögnum að mæli og munu sjá um viðgerð á þeim, en lagnir fyrir innan mæli eru eign og ábyrgð húseigenda.