Ársreikningur 2019

Hagnaður af reglulegri starfsemi ársins 2019 var 1.051 m.kr. á móti hagnaði árið 2018 upp á 815 m.kr. Vegna niðurfellingar langtímaskuldar í kjölfar dóms Hæstaréttar var heildarhagnaður eftir skatta 1.592 m.kr. á móti 682 m.kr. árið 2018.

 

EBITDA var 2.701 m.kr. (37,7%) árið 2019 á móti 2.456 m.kr. (35,5%) árið 2018.

 

Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall þann 31. desember 2019 er 46,7% en var 43,5% í ársbyrjun.

 

Veltufjárhlutfall var 2,12 þann 31. desember 2019 samanborið við 3,14 í árslok 2018.

 

Ársreikningur

 

Fréttatilkynning