Árshlutareikningur fyrri hluta árs 2019

Árshlutareikningur HS Veitna hf. fyrir fyrri hluta ársins 2019 var samþykktur á fundi stjórnar í dag, 30 ágúst 2019

 

Heildarhagnaður á fyrri hluta ársins 2019 var 499 m.kr. á móti hagnaði á sama tímabili árið 2018 upp á 380 m.kr.

 

EBITDA hækkar umtalsvert, var á fyrri helmingi 2019 1.419 m.kr. (38,8%) á móti 1.214 m.kr. (35,1%) á sama tímabili árið 2018.

 

Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall þann 30. júní 2019 er 43,2% en var 41.4% á sama tímabili 2018.

 

Veltufjárhlutfall var 2,57 þann 30. júní 2019 samanborið við 3,14 í árslok 2018.

 

Hluthafar félagsins eru fjórir, í lok júní áttu þrír hluthafa yfir 10% hlut í félaginu:

  • Reykjanesbær 50.10%
  • HSV Eignarhaldsfélag slhf 34.38%
  • Hafnarfjarðarbær 15.42%

Árshlutareikningur 2019

 

Fréttatilkynning