Árshlutareikningur fyrri hluta árs 2018

Árshlutareikningur HS Veitna hf. fyrir fyrri hluta ársins 2018 var samþykktur á fundi stjórnar 24. ágúst 2018.

 

Heildarhagnaður á fyrri hluta ársins 2018 var 380 m.kr. á móti hagnaði á sama tímabili árið 2017 upp á 346 m.kr.

 

EBITDA hækkar umtalsvert, var á fyrri helmingi 2018 1.214 m.kr. (35,1%) á móti 973 m.kr. (31,9%). á sama tímabili árið 2017.

 

Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall þann 30. júní 2018 er 41,4% en var 41.9% á sama tímabili 2017.

 

Veltufjárhlutfall var 2,27 þann 30. júní 2018 samanborið við 0,68 í árslok 2017.


Hluthafar félagsins eru fjórir, í lok júní áttu þrír hluthafa yfir 10% hlut í félaginu þeir eru:

  • Reykjanesbær 50,10%
  • HSV Eignarhaldsfélag slhf 34,38%
  • Hafnarfjarðarbær 15,42%

Árshlutareikningur 2018

 

Fréttatilkynning