Árshlutareikningur fyrri hluta árs 2016

Árshlutareikningur HS Veitna hf. fyrir fyrri hluta ársins 2016 var samþykktur á fundi stjórnar 19. ágúst 2016.

 

Heildarhagnaður á fyrri hluta ársins 2016 var 404 m.kr. á móti hagnaði á sama tímabili árið 2015 upp á 338 m.kr.

 

EBITDA hækkar milli tímabila, EBITDA á fyrri helmingi 2016 var 1.002 m.kr. (34,3%) á móti 940 m.kr. (32,9%). á sama tímabili árið 2015.

 

Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall þann 30. júní 2016 er 41,3% en var 40.6% á sama tíma 2015.

 

Veltufjárhlutfall var 2,60 þann 30. júní 2016 samanborið við 3,49 í árslok 2015.


Hluthafar félagsins eru fjórir, í lok júní áttu þrír hluthafa yfir 10% hlut í félaginu þeir eru:

  • Reykjanesbær 50,10%,
  • HSV Eignarhaldsfélag slhf 34,38%
  • Hafnarfjarðarbær 15,42%

Árshlutareikningur 2016

 

Fréttatilkynning