Aðalfundur 2023

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðalfundur HS Veitna var haldinn miðvikudaginn 23. mars kl. 16 að Brekkustíg 36 Reykjanesbæ.

Mætt var 100% fyrir hönd hluthafa.

Dagskrá fundarins var samkvæmt lögum félagsins.

Formaður stjórnar, Guðný Birna flutti skýrslu ásamt forstjóra sem fór yfir það helsta í rekstri fyrirtækisins á síðasta ári. Fjallaði hann meðal annars um sterka fjárhagsstöðu félagsins og áframhaldandi góðar rekstrarhorfur. Jafnframt lagði hann áherslu á áframhaldandi stækkun veitukerfa félagsins eftir því sem þörf krefur og til að tryggja viðskiptavinum hámarks afhendingaröryggi.

Í stjórn voru kjörin frá Reykjanesbæ
• Jóhann Friðrik Friðriksson
• Guðný Birna Guðmundsdóttir
• Margrét Sanders
• Friðjón Einarsson

Frá HSV Eignarhaldsfélagi slhf
• Heiðar Guðjónsson
• Ómar Örn Tryggvason
• Kristín Erla Jóhannsdóttir

Eftir aðalfund kom stjórn saman til fyrsta fundar og skipti með sér verkum á eftirfarandi hátt
• Formaður, Jóhann Friðrik Friðriksson
• Varaformaður, Heiðar Guðjónsson
• Ritari, Guðný Birna Guðmundsdóttir

 

Ársreikning má sjá hér og Ársskýrsluna má lesa hér