33 kV dreifikerfi á veitusvæðinu í Hafnarfirði

Klukkan 12:55:25 þann 4. mars 2021 urðu tímamót fyrir veitusvæðið í Hafnarfirði.

33 kV jarðstrengur á milli aðveitustöðvar í Hamranesi (JON-A) og aðveitustöðvar í Öldugötu (OLD-A) var tekinn í rekstur.

Í því augnabliki fóru fóru 4,6MW (eða um 27%) af 132kV jarðstreng Landsnets sem liggur frá tengivirki Landsnets í Hamranesi til aðveitustöðvar okkar í Öldugötu yfir á 33kV jarðstrenginn milli OLD-A og JON-A.

Með tilkomu 33 kV dreifikerfisins á veitusvæðinu í er því búið að bæta rekstrar- og afhendingaröryggi viðskipta á veitusvæðinu til muna.

33 kV jarðstrengurinn milli aðveitustöðvana hefur ekki stefnuvirkar varnir og er það vegna þess að hans hlutverk er að tryggja rekstraröryggi bæði í Öldugötu og Hamranesi.

Ef það atvikast að 132 kV færi út hjá Landsneti í Öldugötu, þá mun aflið flytjast yfir á 33 kV. Einnig ef að 132 kV færi út hjá Landsneti í Hamranesi, þá mun aflið flytjast yfir á 33 kV án rekstrartruflana til viðskiptavina.