Nýr skuldabréfaflokkur HSVE 310138

HS Veitur hf. gefa út nýjan skuldabréfaflokk – HSVE 310138

 

HS Veitur hf. hefur nú lokið við sölu á nýjum skuldabréfaflokk HSVE 310138 en flokkurinn er gefin út í tengslum við fjármögnun félagsins á fjárfestinga í nýjum verkefnum og til að mæta lokagjalddaga HSVE08 1.

 

HSVE 310138 er verðtryggt jafngreiðslubréf til 20 ára og ber 2,98% nafnvexti með greiðslum tvisvar á ári. Stefnt var að taka tilboðum fyrir allt að 3.500 milljónum króna með möguleika á því að stækka heildarútgáfu flokkisins í allt að 5.500 milljónir króna síðar á árinu 2018. Heildareftirspurn eftir skuldabréfaflokknum var 6.870 milljónir króna. Var ákveðið að taka tilboðum að nafnverði 5.500 milljónir króna og var skuldabréfið selt á pari.

 

Skuldabréfin verða gefin út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. og er útgáfudagur bréfanna 31. janúar 2018. Stefnt er að skráningu flokksins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. eigi síðar en 31. desember 2018.

 

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

 

Eftirlitsaðili skuldabréfaflokksins HSVE 310138 er Deloitte ehf.