Árshlutareikningur fyrri hluta árs 2017

Árshlutareikningur HS Veitna hf. fyrir fyrri hluta ársins 2017 var samþykktur á fundi stjórnar 23. ágúst 2017.

 

Heildarhagnaður á fyrri hluta ársins 2017 var 346 milljónir króna á móti hagnaði á sama tímabili árið 2016 upp á 404 milljónir króna.

 

EBITDA lækkar lítillega milli tímabila, EBITDA á fyrri helmingi 2017 var 973 milljónir króna (31,9%) á móti 1.002 milljónum króna (34,3%). á sama tímabili árið 2016.

 

Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall þann 30. júní 2017 er 41,9% en var 41.3% á sama tíma 2016.

 

Veltufjárhlutfall var 1,85 þann 30. júní 2017 samanborið við 2,52 í árslok 2016.


Hluthafar félagsins eru fjórir, í lok júní áttu þrír hluthafa yfir 10% hlut í félaginu þeir eru:

  • Reykjanesbær 50,10%,
  • HSV Eignarhaldsfélag slhf 34,38%
  • Hafnarfjarðarbær 15,42%

Árshlutareikningur 2017

Fréttatilkynning