Aðgerð til að auka afhendingaröryggið í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjastrengur 1 tekinn úr rekstri, varaafl keyrt á meðan

 

Miðvikudaginn 8. febrúar kl. 21:00 munum við þurfa að taka Vestmannaeyjastreng 1 úr rekstri í 2 -3 tíma vegna vinnu i tengirými Landsnet og í dreifistöð 14 hjá HS veitum. Aðgerð sem er ætluð til þessa að auka afhendingaröryggi i Eyjum á meðan að Vestmannaeyjastrengur 3 er úr rekstri.

 

Á meðan á aðgerðinni stendur mun varaaflið sjá Vestmannaeyjum fyrir rafmagni en búast má við einhverjum truflunum á meðan. En við vonumst til þess að svo verði ekki og að allt gangi að óskum.

 

Minnum á að ef til verulegra truflana kemur munu við birta upplýsingar á www.landsnet.is og www.hsveitur.is ásamt því að tilkynningar verða settar á samfélagsmiðla fyrirtækjanna.

 

Takk fyrir skilninginn og þolinmæðina
Landsnet og HS veitur.