Rafmagnslaust útfrá dreifistöð sem stendur við Mávatjörn í Reykjanesbæ

Vegna viðhaldsvinnu í DRE-222 við Mávatjörn Reykjanesbæ, þann 18.nóvember er óhjákvæmilegt að  fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur.

Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) hafa fengið senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 09:00 og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 13:00 sama dag.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.