Rafmagnslaust útfrá dreifistöð sem stendur við Hringbraut 74 í Reykjanesbæ

UPPFÆRT 17:51 Rafmagn komið á að nýju, beðist er velvirðingar á þeim töfum sem urðu.

 

UPPFÆRT 16:16 Tafir eru að verða á að rafmagn komi á að nýju og má gera ráð fyrir því að rafmagn komi á að nýju fyrir kl 19:00 í kvöld.

 

 Vegna viðhaldsvinnu í DRE-021 við Hringbraut 74 Reykjanesbæ, þann 10.nóvember er óhjákvæmilegt að  fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur.

Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) hafa fengið senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 09:00 og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 17:00 sama dag.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.