Rafmagnslaust útfrá dreifistöð sem stendur við Skólaveg í Reykjanesbæ

Vegna vinnu í DRE-026 við Skólaveg í Reykjanesbæ, aðfaranótt 10.ágúst er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur.

Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) hafa fengið senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum) og tölvupósti sem hafa skráð tölvupóstfang.

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti aðfaranótt miðvikudags 10.ágúst og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 05:00 að morgni 10.ágúst

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.