Rafmagnsleysi útfrá aðveitustöð VOG-A Vogum

Vegna viðhaldsvinnu í aðveitustöð okkar í Vogum þá stöndum við frammi fyrir því að þurfa að taka rafmagnið af Vogum á neðangreindum tímum:

 

Aðfaranótt 06.10.21. Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti og rafmagn verði komið á aftur einum og hálfum klukkutíma síðar eða kl 01:30.

 

Aðfaranótt 11.10.21. Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti og rafmagn verði komið á aftur 07:00 að morgni þann 11.10.21

 

Eigendur fasteigna í Vogum  sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).

 

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.