Um rafveituna

Við dreifum rafmagni á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Árborg og Vestmannaeyjum

Við eigum og rekum dreifikerfi fyrir rafmagn í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Álftanesi og hluta Garðabæjar, Árborg og í Vestmannaeyjum.

 

Rafmagnsveita á Suðurnesjum

Rafmagnið sem við dreifum á Suðurnesjum fáum við afhent frá dreifineti Landsnets á nokkrum afhendingarstöðum.
Þaðan dreifum við rafmagni í öll sveitarfélög á Suðurnesjum.

 

Rafmagnsveita í Hafnarfirði og nágreni

Allt rafmagn sem við dreifum í Hafnarfirði, Álftanesi og hluta Garðabæjar (vestan lækjar) fáum við afhent frá Landsneti í aðveitustöðinni okkar við Öldugötu og þaðan er því dreift út í dreifistöðvar, þaðan í götukassa og úr götukössum inní hús.

Á árinu 2018 hófust framkvæmdir við byggingu nýrrar aðveitustöðvar í Hamranesi sem fékk nafnið JÓN-A.

Hún var tekin í notkun síðla árs 2019 en við það styrkist dreifikerfið og afhendingaröryggi jókst.

 

Rafmagnsveita í Árborg

Rafmagnið sem að við dreifum á Árborgarsvæðinu (Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri) fáum við afhent í aðveitustöðina okkar á Selfossi sem stendur við Austurveg, þaðan er því dreift út í dreifistöðvar víðsvegar um sveitarfélagið, þaðan yfir í götukassa og á endanum berst það í húskynni notenda.

 

Rafmagnsveita í Vestmannaeyjum

Til Vestmannaeyja er rafmagnið flutt um sæstreng. Í Eyjum fáum við það afhent í nýrri aðveitustöð sem staðsett er á Strandvegi 18a og fékk nafnið Garðar í höfuðið á Garðari Sigurjónssyni fyrrum rafveitustjóra í Vestamannaeyjum. Að auki eigum við ljósavélar í húsnæði okkar á Tangagötu 1, sem keyrðar eru upp ef bilanir koma upp.