Leiðbeiningar fyrir prókúruhafa til að veita einstaklingum umboð fyrir hönd fyrirtækis eða félagasamtaka inná Mín Síða
Prófkúruhafar og þeir aðilar sem hafa aðgang að heimabanka fyrirtækis eða félagasamtaka geta veitt einstaklingum og sjálfum sér þar með umboð fyrir hönd fyrirtækisins.
Umboðiðer veitt með því að fara inná vefslóðina https://login.signet.is/Home/Form/12
og skráir sig þar inn með sínum persónulegu rafrænu skilríkjum.
Eftir innskráninguna birtist valmynd þar sem má gefa einstaklingum aðgang að Mín Síða vef HS veitna fyrir hönd lögaðila.
Veita umboð fyrir:
Ef þú ert prókúruhafi eða með staðfest tengsl við fyrirtæki getur þú valið
að veita umboð fyrir hönd lögaðila og valið lögaðila úr listanum.
Umboðshafi
Settu kennitölu þess sem á að fá aðgang að vef HS veitna inn í reitinn “Umboðshafi”
Gildir til
Settu inn inn í svæðið „Gildir til“ dagsetningu fyrir hve lengi starfsmaðurinn á að hafa
aðgang að vefsíðunni, t.d. dagsetningingu 2 árum frá deginum í dag.
Veita umboð
Þegar búið er að fylla inn upplýsingar er smellt á hnappinn Veita umboð til að staðfesta.
Dæmi um útfyllt form
Eftir að ýtt hefur verið á Veita umboð birtist mynd þar sem hægt er að fara yfir og staðfesta umboðsveitinguna.
Þegar ýtt er á staðfesta fer af stað vinnsla þar sem umboðið er útbúið. Í sumum tilfellum þarf að undirrita umboðið.