Fræðsla vegna rafrænnar vöktunar
Rafræn vöktun
Hér má nálgast ýmsar upplýsingar um notkun öryggis- og eftirlitsmyndavéla hjá HS Veitum.
Rafræn vöktun fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglur Persónuverndar nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
-
HS Veitur
Brekkustígur 36, 260 Reykjanesbæ
Sími: 422-5200
Netfang: hsveitur@hsveitur.is -
Hægt er að beina fyrirspurnum, ábendingum eða kvörtunum um vinnslu persónuupplýsinga til persónuverndarfulltrúa HS Veitna á netfangið: personuvernd@hsveitur.is.
-
Rafræn vöktun fer fram í öryggis-, eignavörslu- og rekstraröryggisskyni. Markmið hennar er að vernda starfsfólk, gesti, eignir og þá mikilvægu innviði og þjónustu sem HS Veitur reka fyrir samfélagið.
Vöktunin styður jafnframt við öryggi innviða, forvarnir gegn óheimilum aðgangi, skemmdarverkum og öðrum atvikum sem geta haft áhrif á rekstur HS Veitna eða þjónustu við samfélagið. Markmiðið er einnig að stuðla að þjónustusamfellu, efla viðnámsþrótt mikilvægra innviða og viðhalda öruggum og áreiðanlegum rekstri þeirra kerfa, mannvirkja og þjónustu sem félagið ber ábyrgð á.
Vöktun getur farið fram á þeim stöðum og svæðum þar sem öryggis- eða rekstrarleg sjónarmið gera slíkar ráðstafanir nauðsynlegar. Við framkvæmd vöktunar er ávallt gætt að friðhelgi einkalífs og persónuvernd þeirra sem sæta vöktun og leitast við að takmarka vöktun við það sem nauðsynlegt er miðað við tilgang hennar.
-
Svæði sem sæta rafrænni vöktun eru merkt með skýrum og sýnilegum upplýsingaskiltum áður en komið er inn á hið vaktaða svæði. Á skiltunum kemur fram að rafræn vöktun fari fram á vegum HS Veitna og þar er jafnframt vísað á nánari upplýsingar um vöktunina og vinnslu persónuupplýsinga. Markmið merkinganna er að tryggja að einstaklingar sem koma inn á vaktað svæði séu upplýstir um vöktunina áður en þeir koma inn á viðkomandi svæði, í samræmi við gildandi persónuverndarlög og reglur um rafræna vöktun.
-
Ef nauðsyn krefur vegna öryggis-, eignavörslu- eða rekstraröryggissjónarmiða er unnið með myndefni sem verður til við vöktunina. Á myndefninu kunna að sjást einstaklingar, svo sem starfsmenn, verktakar, viðskiptavinir, gestir eða aðrir sem fara um hið vaktaða svæði.
-
Vinnsla persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun hjá HS Veitum fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins samkvæmt 6. tölul. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og í samræmi við reglur Persónuverndar nr. 50/2023 um rafræna vöktun. Rafræn vöktun fer fram í þeim tilgangi að gæta öryggis, eignavörslu, rekstraröryggis, öryggis innviða, þjónustusamfellu og viðnámsþróttar mikilvægra innviða. Vöktunin er jafnframt liður í að tryggja öruggan rekstur þeirrar mikilvægu þjónustu sem HS Veitur veita samfélaginu.
-
Allur aðgangur að efni sem verður til við rafræna vöktun er aðgangsstýrður. Einungis sérstaklega heimilað starfsfólk HS Veitna hefur aðgang að myndefni eða rauntímamyndum frá vöktunarkerfum í samræmi við starfsskyldur sínar og ábyrgð á öryggi, rekstri eða viðbrögðum við atvikum. Heimilaðir starfsmenn kunna jafnframt að fá sjálfvirkar tilkynningar um öryggis- eða rekstraratvik þegar slíkt er nauðsynlegt til að tryggja skjót og markviss viðbrögð við atvikum sem geta haft áhrif á öryggi fólks, eigna, innviða eða þjónustu.
Myndefni sem tengist slysi, öryggisatviki eða ætluðum refsiverðum verknaði kann að vera afhent lögreglu eða öðrum þar til bærum stjórnvöldum þegar lagaheimild eða lögboðin skylda stendur til þess.
-
Myndefni er almennt varðveitt í allt að 30 daga. Að þeim tíma liðnum er myndefni eytt nema málefnalegar og rökstuddar ástæður séu til lengri varðveislu, svo sem vegna rannsóknar slyss, öryggisatviks eða ætlaðs refsiverðs verknaðar.
-
Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig átt þú rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra.
Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.
-
Teljir þú að vinnsla persónuupplýsinga um þig vegna rafrænnar vöktunar fari gegn ákvæðum persónuverndarlaga átt þú rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd.