Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Lokun á heitu vatni á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september

Fyrirhuguð er lokun á heitu vatni á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september vegna viðamikilla framkvæmda HS Veitna við stofnæð hitaveitu við Njarðarbraut og framkvæmda HS Orku við dælustöð á Fitjum.

DJI 0609

Lokunin mun hafa áhrif á viðskiptavini í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Vogum og á Keflavíkurflugvelli.

Tímasetning og lengd lokunar verður mismunandi eftir svæðum.

Ytri-Njarðvík, Keflavík og Suðurnesjabær

Lokað verður fyrir heitt vatn frá kl. 04:00 miðvikudaginn 9. september.

Gera má ráð fyrir að heitt vatn verði komið á aftur innan 12–24 klukkustunda, en það verður mismunandi eftir svæðum hvenær vatnið skilar sér að fullu.

Innri-Njarðvík, Ásbrú, Keflavíkurflugvöllur og Vogar

Lokað verður fyrir heitt vatn frá kl. 08:00 miðvikudaginn 9. september.

Gera má ráð fyrir að lokunin vari í 5–7 klukkustundir. Heitt vatn getur þó borist áfram til einhverra viðskiptavina eftir kl. 08:00 vegna vatns sem þegar er í tönkum og dreifikerfi.

Þegar heita vatnið kemur aftur

Þegar framkvæmdum lýkur tekur tíma að byggja upp þrýsting í hitaveitukerfinu. Heita vatnið getur því skilað sér misfljótt til viðskiptavina eftir staðsetningu.

Við hvetjum viðskiptavini til að gera ráðstafanir með góðum fyrirvara og miða við ofangreindan tíma.

Tímabundin íblöndun jarðhitagufu

Í tengslum við framkvæmdina verður tímabundið notast við uppblöndun á jarðhitagufu í framleiðsluferlinu í Svartsengi. Tilgangurinn er að draga úr súrefni í vatninu og verja þannig dreifikerfi og lagnakerfi húsa gegn tæringu.

Uppblöndunin getur valdið hveralykt af heita vatninu. 

Við fylgjumst vel með

Framkvæmdirnar eru liður í nauðsynlegri endurnýjun og uppbyggingu hitaveitukerfisins til að tryggja örugga og trausta afhendingu heits vatns til framtíðar.

Um er að ræða viðamiklar framkvæmdir og mun starfsfólk HS Veitna og HS Orku vinna að því að koma heitu vatni aftur á eins fljótt og örugglega og aðstæður leyfa.

Við munum halda viðskiptavinum upplýstum um framvindu og uppfæra upplýsingar á miðlum okkar eftir því sem verkinu miðar áfram.

Hér má nálgast kort og áætlaða tímalínu fyrir lokun á hverju svæði.

Við þökkum fyrir skilning og þolinmæði á meðan á framkvæmdunum stendur.