Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

HS Veitur settu mark sitt á Fagþing Samorku 2026

Stjórnendur og sérfræðingar HS Veitna tóku virkan þátt í Fagþingi Samorku 2026 sem fram fór í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Með tólf erindum á þinginu miðlaði starfsfólk fyrirtækisins reynslu og þekkingu sem orðið hefur til við uppbyggingu, rekstur og þróun mikilvægra innviða á tímum mikilla samfélagsbreytinga og náttúruhamfara.

696045924 1615284247266480 8707378420014737627 N

Starfsfólk HS Veitna lét einnig til sín taka í fagkeppni Samorku þar sem keppt var um titilinn Fagmeistari Samorku. Þar hafnaði lið HS Veitna í öðru sæti eftir glæsilega frammistöðu í harðri keppni sem reyndi á bæði fagþekkingu og verklega færni þátttakenda.

699573112 1615275613934010 4622771623333965154 N
Starfsfólk HS Veitna á Fagþingi Samorku 2026
© Samorka

Erindin endurspegluðu vel þau verkefni sem eru efst á baugi hjá HS Veitum. Annars vegar hvernig tryggja megi örugga og hagkvæma þjónustu til framtíðar með markvissri uppbyggingu og endurnýjun veitukerfa og hins vegar hvernig mæta skuli nýjum áskorunum sem fylgja hraðri tækniþróun, breyttum notkunarmynstrum og auknum kröfum um rekstraröryggi.

Mikil umræða skapaðist um þróun innviða sem víða eru komnir á miðjan aldur eða eldri. Líkt og fram hefur komið hjá HS Veitum eru gögn, greiningar og snjallvæðing sífellt mikilvægari verkfæri við ákvarðanatöku um endurnýjun og framtíðaruppbyggingu. Með tilkomu snjallmæla og aukinni gagnasöfnun skapast ný tækifæri til að fylgjast með ástandi kerfa, bæta þjónustu við viðskiptavini og nýta auðlindir með hagkvæmari hætti.

696075398 1615280673933504 5669804187300371004 N
Sigurbjörn Orri, tæknistjóri vatns- og hitaveitu miðlar þekkingu á fagþingi Samorku 2026

Þá var fjallað um hvernig samfélagsþróun hefur áhrif á veitukerfin. Fólksfjölgun, uppbygging nýrra atvinnusvæða, aukin nýting glatvarma og nýjar tæknilausnir kalla á að horft sé lengra fram í tímann við hönnun og þróun innviða en áður hefur tíðkast.

Reynsla HS Veitna af eldvirkni og náttúruhamförum á Reykjanesskaga var einnig áberandi í dagskránni. Fjallað var um neyðarviðbrögð, samskipti við almenning í almannavarnaástandi, lagnir sem lent hafa undir hrauni og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til til að tryggja afhendingaröryggi vatns og hita við fordæmalausar aðstæður. Sú reynsla hefur vakið athygli víða og skapað mikilvægan lærdóm fyrir veitur um land allt.

696244497 1615280123933559 1325779440060589452 N
Baldur Dýrfjörð, lögmaður HS Veitna miðlar þekkingu á Fagþingi Samorku 2026

Jafnframt voru kynnt þróunarverkefni sem snúa að nýtingu orku og auðlinda með nýjum hætti, þar á meðal varm¬dælulausnir í Vestmannaeyjum og verkefni sem tengjast aukinni nýtingu bakrásarvatns og glatvarma.

Í tengslum við fagþingið buðu HS Veitur þinggestum í fordrykk í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjanesbæ. Þar gafst tækifæri til að ræða við starfsfólk, kynnast starfsemi fyrirtækisins og skiptast á hugmyndum um framtíð veitna og innviða á Íslandi

696059414 1615287693932802 7158997892634994200 N
Páll Marcher Egonsson, sérfræðingur í mælaþjónustu
© Samorka

Þótt fimmtíu ár séu liðin frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja, forvera HS Veitna, standa sömu grunngildi enn sterkt: framsýni, fagmennska og uppbygging innviða sem þjóna samfélaginu til langs tíma. Þátttaka HS Veitna á Fagþingi Samorku var skýr áminning um að framtíð veitukerfa byggir ekki aðeins á sterkum mannvirkjum heldur einnig á þekkingu, nýsköpun og hæfu starfsfólki sem er tilbúið að takast á við verkefni morgundagsins.

696097139 1615277510600487 7176127623091055113 N
Anna Birgitta Geirfinnsdóttir framkvæmdastjóri fjármála