Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

HS Veitur bæði fyrirmyndar- og framúrskarandi fyrirtæki árið 2026

HS Veitur eru í hópi þeirra íslensku fyrirtækja sem hljóta viðurkenningu fyrir traustan og ábyrgan rekstur árið 2026. Fyrirtækið er bæði meðal fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri samkvæmt mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar og í hópi framúrskarandi fyrirtækja að mati Creditinfo.

ABG Framúrskarandi
Anna Birgitta Geirfinnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála tók við viðurkenningu fyrir hönd HS Veitna.

Viðurkenningarnar eru veittar fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um rekstur og fjárhagslega stöðu og endurspegla þær þann stöðugleika og fjárhagslega styrk sem einkennir rekstur HS Veitna.

Meðal 1.769 fyrirmyndarfyrirtækja

Viðskiptablaðið og Keldan taka árlega saman lista yfir þau fyrirtæki sem teljast til fyrirmyndar í rekstri. Árið 2026 hlutu 1.769 íslensk fyrirtæki viðurkenninguna.

Við matið er meðal annars horft til afkomu, tekna, eigna og eiginfjárhlutfalls, auk annarra þátta sem endurspegla traustan rekstur. Rekstrarárin 2024 og 2025 liggja til grundvallar matinu, en jafnframt er tekið tillit til ársins 2023.

Einnig meðal framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo

HS Veitur eru jafnframt í hópi þeirra 1.217 fyrirtækja sem Creditinfo útnefndi framúrskarandi fyrirtæki árið 2026.

Creditinfo hefur um árabil greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt þeim viðurkenningu sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk og rekstrarárangur.

Til þess að hljóta viðurkenninguna þurfa fyrirtæki meðal annars að sýna fram á jákvæða afkomu, trausta eiginfjárstöðu og stöðugleika í rekstri yfir þriggja ára tímabil.

Traustur rekstur byggir á öflugum mannauði

„Við erum afar stolt af því að hljóta þessar viðurkenningar. Fjárhagslegur styrkur er mikilvæg forsenda þess að við getum byggt upp og viðhaldið þeim innviðum sem samfélagið reiðir sig á. En á bak við góðar rekstrarniðurstöður stendur fyrst og fremst fólk. Við erum svo heppin að búa yfir öflugum mannauði sem leggur metnað sinn í að gera vel á hverjum degi. Þessar viðurkenningar eru því ekki síður viðurkenning á framlagi starfsfólks HS Veitna,“ segir Anna Birgitta Geirfinnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá HS Veitum.

Fyrir samfélagslega mikilvægt innviðafyrirtæki á borð við HS Veitur skiptir traustur og ábyrgur rekstur miklu máli. Hann er ein af undirstöðum þess að fyrirtækið geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við uppbyggingu, rekstur og viðhald veitukerfa sem heimili og atvinnulíf reiða sig á á hverjum degi.

HS Veitur munu áfram leggja áherslu á ábyrgan rekstur, hagkvæmni og framsýni með það að markmiði að tryggja örugga og áreiðanlega veituþjónustu til framtíðar.