Páll Erland, forstjóri HS Veitna, flutti erindi um uppbyggingu veituinnviða á Suðurnesjum og þær umfangsmiklu fjárfestingar sem fram undan eru.
HS Veitur gera ráð fyrir að tvöfalda árlegar fjárfestingar sínar á komandi árum, úr um tveimur milljörðum króna í um fjóra milljarða á ári næstu fimm árin.
Vöxtur kallar á öfluga innviði
Mikil uppbygging er fyrirhuguð á Suðurnesjum og samhliða fjölgun íbúa, auknum umsvifum atvinnulífs og orkuskiptum er gert ráð fyrir að eftirspurn eftir grunninnviðum aukist verulega.
Greiningar HS Veitna gera ráð fyrir að rafmagnsþörf á þjónustusvæði félagsins geti aukist um allt að 100% til ársins 2050. Þá gæti þörf fyrir bæði heitt og kalt vatn á Suðurnesjum allt að því tvöfaldast á næstu 25 árum.
Á næstu árum verður því lögð rík áhersla á að styrkja og byggja upp dreifikerfi HS Veitna til að mæta áframhaldandi vexti og tryggja örugga afhendingu til heimila og fyrirtækja.
Virk þátttaka í samtalinu um framtíð svæðisins
HS Veitur komu einnig að þinginu með öðrum hætti. Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskiptastjóri HS Veitna, hélt utan um fundarstjórn dagskrárinnar.
Á þinginu kynntu fjölmörg fyrirtæki umfangsmikil uppbyggingar- og fjárfestingaráform á svæðinu. Jafnframt var fjallað um skipulagsmál, innviði og framkvæmdir og þau fjölmörgu tækifæri sem felast í áframhaldandi uppbyggingu Reykjanesbæjar.
Fyrir HS Veitur er mikilvægt að taka virkan þátt í samtali um framtíðaruppbyggingu svæðisins. Veituinnviðir eru ein af grunnforsendum vaxtar og mikilvægt er að uppbygging þeirra haldist í hendur við þróun samfélagsins.