Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Hækkun verðskrár hitaveitu

Þann 1. nóvember hækkaði verðskrá hitaveitu á Suðurnesjum og fjarvarmaveitunar í Vestmannaeyjum um 4,81%.

Hyperlapse Keflavik Ozzo 2018 19

Kostnaðarhækkanir og miklar fjárfestingar í endurnýjun eldri lagna og nýfjárfestingum hitaveitunnar til að mæta þörfum samfélagsins, bæði á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum, kalla á breytingu á verðskrá.

Fjárfestingar fyrirtækisins í hitaveituinnviðum á þessu ári nema tvöfalt hærri fjárhæð en árin á undan. Þær eru mikilvægur liður í að viðhalda veitukerfum, tryggja afhendingaröryggi og mæta framtíðarþörfum íbúa og atvinnulífs á þjónustusvæðum fyrirtækisins.

HS Veitur leggja ávallt áherslu á að halda verðskrám eins hagstæðum og kostur er og þrátt fyrir þessar breytingar á verðskrá eru HS Veitur áfram ódýrasta rafveita landsins, ódýrasta fjarvarmaveitan auk þess sem verð fyrir hita- og vatnsveitu er meðal þess lægsta sem veitufyrirtæki bjóða.