Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Benedikt nýr framkvæmdastjóri veitukerfa hjá HS Veitum

HS Veitur hafa ráðið Benedikt Kristján Magnússon sem framkvæmdastjóra veitukerfa. Hann tók við starfinu í mars 2026 og mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi uppbyggingu og rekstri veitukerfa félagsins.

Benni4

Benedikt er rafmagnsverkfræðingur að mennt frá DTU í Danmörku, þar sem hann lauk bæði BSc og MSc prófi. Áður hafði hann lokið námi í vélstjórn og rafvirkjun frá Tækniskólanum. Hann býr yfir víðtækri þekkingu á orkumálum og hefur á undanförnum árum öðlast dýrmæta reynslu á sviði reksturs, viðhalds og þróunar innviða í orkugeiranum.

Áður en Benedikt kom til starfa hjá HS Veitum starfaði hann hjá Orku Náttúrunnar, þar sem hann gegndi ýmsum stjórnendastöðum og sat í framkvæmdastjórn. Þar á meðal var hann forstöðumaður orkuframleiðslu með ábyrgð á rekstri virkjana á Hellisheiði og Nesjavöllum. Í þeim störfum leiddi hann umfangsmikil verkefni sem tengdust framleiðslu rafmagns og heits vatns, auk umbóta í öryggismálum, sjálfvirkni og orkunýtingu.
Benedikt starfaði einnig hjá Landsneti við rekstur og stýringu raforkukerfisins, auk þess að sinna greiningarvinnu og umbótaverkefnum í samstarfi við viðskiptavini. Þá hefur hann alþjóðlega reynslu meðal annars frá störfum hjá verkfræðistofunum COWI og Balslev í Danmörku þar sem hann kom að þróunarverkefnum á sviði orkulausna, þar á meðal vindorku.

Hann kemur til HS Veitna frá franska orkufyrirtækinu Qair þar sem hann vann að undirbúningi ammoníaksverksmiðju á Grundartanga. Sú reynsla styrkir enn frekar bakgrunn hans í nýsköpun og orkuskiptum.

„Það er mér mikill heiður að ganga til liðs við HS veitur, sem er veitufyrirtæki í fremstu röð. Þjónustusvæði félagsins á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Selfossi og í Vestmannaeyjum eru allt gróskumikil svæði með sterku atvinnulífi og þar er fyrirséður mikill vöxtur á komandi misserum. Hér hefur verið byggð upp öflug starfsemi og ég hlakka til að vinna með starfsfólki og viðskiptavinum að því að þróa veitukerfin áfram með öryggi, gæði og nýsköpun að leiðarljósi“

Með ráðningu Benedikts fá HS Veitur til liðs við sig reynslumikinn stjórnanda með sterka faglega sýn og víðtæka reynslu úr orkugeiranum. Þekking hans og leiðtogahæfni mun nýtast vel í áframhaldandi þróun og rekstri veitukerfa félagsins.