Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Keflavík: endurnýjun á dreifikerfi við Faxabraut sumarið 2026

Framkvæmdir hefjast 11. júní og standa fram í desember 2026. Skert aðgengi verður að innkeyrslum og gangstéttum á köflum við Faxabraut, Kross- og Þverholt.

Faxabraut
Framkvæmdasvæðið er merkt með rauðu á meðfylgjandi mynd

Umræddar framkvæmdir geta valdið óþægindum fyrir íbúa og vegfarendur, bæði gangandi og akandi, sem fara um svæðið á framkvæmdatímanum. 

Umræddar framkvæmdir tengjast breytingum og endurnýjun á dreifikerfum rafmagns, vatns og hitaveitu. Markmiðið er að auka afhendingaröryggi til viðskiptavina.

Áætlað er að framkvæmdir hefjist 11. júní 2026, verði unnið í þremur til fjórum áföngum eftir tíðarfari og að fullnaðarfrágangi verði lokið í desember 2026. Lagt verður kapp á að halda aðgengi um göturanr og að fasteignum eins og kostur er, en þar sem lagnabeltið verður í gangstéttum beggja vegna götunnar mun aðgengi að innkeyrslum og gangstéttum á köflum verða skert.

Við vonum innilega að íbúar sýni framkvæmdinni skilning

Í samstarfi við Reykjanesbæ viljum við gefa íbúum kost á að koma með óskir um breytt aðgengi að innkeyrslum að lóðum áður en farið verður í fullnaðarfrágang gangstétta. Slíkar óskir skal senda til verkstjóra HS Veitna á netfangið gudmundurbj@hsveitur.is.

Ef einhverjar spurningar vakna, má hafa samband í gegnum þjónustuborð HS Veitna í síma 422 5200 og spyrja eftir Guðmundi, verkstjóra vatns.