Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Aðveitustöð við Kaplahraun KAP-A

HS Veitur hafa hafið byggingu nýrrar aðveitustöðvar við Kaplahraun í Hafnarfirði. Framkvæmdin er mikilvægur liður í að styrkja afhendingaröryggi rafmagns og tryggja áfram gott þjónustustig fyrir viðskiptavini í Hafnarfirði og Garðabæ.

Kap A
Konsept teikning af nýrri aðveitustöð í Hafnarfirði. Áhersla er lögð á að skilja við reitinn með sérkenni og að nálgast hraunið af virðingu.

Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki áramótin 2026/27. 

Nýja aðveitustöðin mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu. HS Veitur leggja áherslu á ábyrga og örugga framkvæmd í góðu samráði við sveitarfélög og í sátt við samfélagið.

Staða verkefnis (uppfært í júní 2026)

Útboði verksins er lokið og hefur tilboði hagstæðasta bjóðanda verið tekið.

Verktaki verksins er Lindar ehf. Framkvæmdir eru hafnar á lóðinni við Kaplahraun 24 í Hafnarfirði.

Verkið felur í sér jarðvinnu, uppsteypu og byggingu tveggja húsa ásamt frágangi lóðar og nærumhverfis. Um er að ræða spennabyggingu með tveimur spennabásum, 138 m² að flatarmáli, og rofasalsbyggingu með jarðhæð og kjallara, samtals 347 m².

Að framkvæmdum loknum verður stöðin tilbúin til uppsetningar og reksturs búnaðar sem styrkir raforkukerfið á svæðinu og eykur afhendingaröryggi til framtíðar.

Tengiliðir

Fyrirspurnum vegna framkvæmdarinnar má beina til eftirfarandi aðila:

  • Ómar Valur Maack, verkefnastjóri framkvæmdar

  • Ingi Björn, svæðisstjóri HS Veitna í Hafnarfirði

  • Jón Ingi, tengiliður verktaka

HS Veitur munu uppfæra þessa síðu eftir því sem framkvæmdum vindur fram