Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Val á raforkusala - Fallorka hættir sölu rafmagns um áramót

Þetta þýðir að allir viðskiptavinir Fallorku þurfa að velja sér nýjan raforkusala fyrir 10. desember 2025.

DSC7937

Raforkusalinn Fallorka hefur tilkynnt að félagið hætti allri sölu á rafmagni til heimila og fyrirtækja frá og með 1. janúar 2026. Nánar má lesa um breytinguna á vef Fallorku.

 

Dreifiveitur mega ekki selja rafmagn eða velja raforkusala fyrir viðskiptavini

HS Veitur minna á að samkvæmt lögum eru dreifiveitum ekki heimilt að selja rafmagn né að koma að vali á raforkusala fyrir hönd viðskiptavina.

HS Veitur dreifa rafmagni til viðskiptavina sem hafa virkan samning við raforkusala.
Ef enginn raforkusali er skráður er dreifiveitunni ekki heimilt að afhenda rafmagn.

Hvetjum viðskiptavini til að velja sem fyrst

Við hvetjum þá sem hingað til hafa keypt rafmagn af Fallorku til að ganga frá samningi við nýjan raforkusala sem allra fyrst og eigi síðar en 10. desember, þannig að tryggt sé að engin truflun verði á þjónustu þegar Fallorka hættir sölu við áramótin.

Ferlið er einfalt

Til að skipta um raforkusala nægir að hafa samband við þann söluaðila sem viðskiptavinur vill kaupa raforku af, til dæmis í gegnum vef eða þjónustuver viðkomandi fyrirtækis.

Nýr raforkusali sér síðan um að tilkynna breytingarnar til Netorku fyrir hönd viðskiptavinar.

Upplýsingar um starfandi raforkusala má finna á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Starfsfólki HS Veitna er óheimilt samkvæmt lögum að aðstoða við val á raforkusala eða skráningarferlið.

Varist svikapósta um val á raforkusala

Í tengslum við framangreint viljum við jafnframt minna viðskiptavini á að HS Veitur senda aldrei út skilaboð eða beiðnir þar sem viðskiptavinir fá hlekk til að setja inn upplýsingar. Ef þú færð póst sem þú telur grunsamlegan má nálgast hér upplýsingar um svikapósta um val á raforkusala.