Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

HS Veitur setja tvær lóðir á Fitjum í Reykjanesbæ á sölu

HS Veitur hafa sett tvær 2800 fermetra samliggjandi lóðir við Fitjabraut og Fitjabakka í Reykjanesbæ á sölu og óska eftir tilboðum í þær.

Lóðir

Um er að ræða lóðir þar sem útilager fyrirtækisins hefur verið staðsettur um árabil.
 
Fyrirtækið hefur nýverið fest kaup á annarri lóð undir útilager sem hentar betur fyrir starfsemi fyrirtækisins og því eru þessar lóðir nú til sölu.
 
Lóðirnar eru staðsettar á einum besta stað í Reykjanesbæ, á Fitjum, í nágrenni við nýja verslun Krónunnar og Byko. Svæðið hefur á undanförnum árum tekið miklum breytingum og er að þróast í öflugt verslunar- og þjónustusvæði miðsvæðis í Reykjanesbæ.

Staðsetningin býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir atvinnurekstur, verslun eða þjónustu og má telja líklegt að lóðirnar muni vekja áhuga þeirra sem hyggjast styrkja eða hefja starfsemi á þessu ört vaxandi svæði.