HS Veitur vilja minna á að þessi hækkun endurspeglar fyrst og fremst aukna notkun. Viðskiptavinir eru með snjallmæla og greiða fyrir raunverulega notkun í hverjum mánuði, sem gerir árstíðasveiflur sýnilegri en áður.
Um 90% heita vatnsins fer í húshitun
Almennt fer um 90% af allri heitavatnsnotkun á heimilum í húshitun. Þegar kólnar úti þarf meira heitt vatn til að halda jöfnu og þægilegu hitastigi innandyra. Því kaldari sem mánuðirnir eru, þeim mun meiri verður notkunin.
Yfir veturinn birtist þetta meðal annars þannig að:
- ofnar og gólfhitakerfi eru í stöðugri notkun
- hitakerfið vinnur meira til að mæta kulda og vindi
- heitavatnsnotkun eykst, oft án þess að við tökum sérstaklega eftir því
Afleiðingin er hærri reikningar yfir vetrarmánuðina, en þegar hlýnar á vorin lækkar bæði notkun og kostnaður aftur.
Veðurfar hefur mest áhrif
Þótt verðskrár og fastir liðir séu hluti af reikningnum, þá er það veðurfarið sem hefur mest áhrif á hitaveitureikninga yfir veturinn. Langir kuldakaflar eða óvenju kalt veður kalla á meiri húshitun og þar með meiri notkun heits vatns.
Betri yfirsýn hjálpar til
Með því að fylgjast með notkun sinni fá viðskiptavinir betri innsýn í hvernig heimilið bregst við kulda. Smáatriði geta skipt máli til lengri tíma, til dæmis:
- að stilla hitakerfi hóflega
- tryggja að ofnar og lokar virki sem skyldi
- draga úr óþarfa rennsli heits vatns
Á Mínum síðum HS Veitna geta viðskiptavinir fylgst með notkun sinni, skoðað þróun milli mánaða og borið saman tímabil.