Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Aðalfundur 2026

Aðalfundur HS Veitna var haldinn miðvikudaginn 25. mars kl. 16 að Brekkustíg 36 Reykjanesbæ.

Processed 4C968117 B7A9 43EE 9EDB 32588BE3F898

Aðalfundur HS Veitna var haldinn miðvikudaginn 25. mars 2025 kl. 16 að Brekkustíg 36 Reykjanesbæ.
Mætt var 100% fyrir hönd hluthafa.

 

Dagskrá fundarins var samkvæmt lögum félagsins.

 

Formaður stjórnar, Friðjón Einarsso flutti skýrslu ásamt forstjóra sem fór yfir það helsta í rekstri fyrirtækisins á síðasta ári. Fjallaði hann meðal annars um hina ýmsu sigra sem náðust á árinu og áframhaldandi góðar rekstrarhorfur þrátt fyrir ýmsar áskoranir svo sem tengt náttúruhamförum. Jafnframt lagði hann áherslu á áframhaldandi stækkun veitukerfa félagsins eftir því sem þörf krefur og til að tryggja viðskiptavinum áfram gott þjónustustig. 

 

Í stjórn voru kjörin frá Reykjanesbæ
• Andri Freyr Stefánsson
• Friðjón Einarsson
• Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
• Margrét Sanders

 

Frá HSV Eignarhaldsfélagi slhf.
• Heiðar Guðjónsson
• Ómar Örn Tryggvason
• Þórunn Helga Þórðardóttir

 

Eftir aðalfund kom stjórn saman til fyrsta fundar og skipti með sér verkum á eftirfarandi hátt
• Formaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
• Varaformaður, Heiðar Guðjónsson

Ársreikning má sjá hér og ársskýrslu 2025 má sjá hér.

Processed 5BF41EBC CFDD 4FD6 8516 3932B96C7557
© HS Veitur