Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Keflavík: endurnýjun á flutningskerfi í Baugholti sumarið 2025

Framkvæmdir hefjast 26. maí og standa fram í október 2025. Skert aðgengi verður að innkeyrslum og gangstéttum á köflum.

Baugholt Júní
Fyrirhugað framkvæmdasvæði er gulmerkt á myndinni

Umræddar framkvæmdir geta valdið óþægindum fyrir íbúa og vegfarendur, bæði gangandi og akandi, sem fara um Baugholtið á framkvæmdatímanum. 

Umræddar framkvæmdir tengjast breytingum og endurnýjun á flutningskerfum rafmagns, vatns og hitaveitu. Markmiðið er að auka afhendingaröryggi til viðskiptavina.

Áætlað er að framkvæmdir hefjist 26. maí nk. og að fullnaðarfrágangi verði lokið í byrjun október 2025. Lagt verður kapp á að halda aðgengi um götuna og að fasteignum eins og kostur er, en þar sem lagnabeltið verður í gangstéttum beggja vegna götunnar, mun aðgengi að innkeyrslum og gangstéttum á köflum verða skert.

Við vonum innilega að íbúar sýni framkvæmdinni skilning

Í samstarfi við Reykjanesbæ viljum við gefa íbúum kost á að koma með óskir um breytt aðgengi að innkeyrslum að lóðum áður en farið verður í fullnaðarfrágang gangstétta. Slíkar óskir skal senda til verkstjóra HS Veitna á netfangið gudmundurbj@hsveitur.is.

Ef einhverjar spurningar vakna, má hafa samband í gegnum þjónustuborð HS Veitna í síma 422 5200 og spyrja eftir Guðmundi, verkstjóra vatns, eða Friðriki, verkstjóra rafmagns.