Aðalfundur 2024

Aðalfundur HS Veitna var haldinn miðvikudaginn 13. mars kl. 16 að Brekkustíg 36 Reykjanesbæ.
Mætt var 100% fyrir hönd hluthafa.

 

Dagskrá fundarins var samkvæmt lögum félagsins.

 

Formaður stjórnar, Jóhann Friðrik flutti skýrslu ásamt forstjóra sem fór yfir það helsta í rekstri fyrirtækisins á síðasta ári. Fjallaði hann meðal annars um sterka fjárhagsstöðu félagsins og áframhaldandi góðar rekstrarhorfur þrátt fyrir ýmsar áskoranir svo sem tengt náttúruhamförum. Jafnframt lagði hann áherslu á áframhaldandi stækkun veitukerfa félagsins eftir því sem þörf krefur og til að tryggja viðskiptavinum hámarks afhendingaröryggi.

 

Í stjórn voru kjörin frá Reykjanesbæ
• Andri Freyr Stefánsson
• Friðjón Einarsson
• Guðný Birna Guðmundsdóttir
• Margrét Sanders

 

Frá HSV Eignarhaldsfélagi slhf.
• Heiðar Guðjónsson
• Ómar Örn Tryggvason
• Þórunn Helga Þórðardóttir

 

Eftir aðalfund kom stjórn saman til fyrsta fundar og skipti með sér verkum á eftirfarandi hátt
• Formaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir
• Varaformaður, Heiðar Guðjónsson
• Ritari, Friðjón Einarsson

Ársreikning má sjá hér