Rafmagnslaust í Grindavík 9. maí 2024

Fimmtudaginn 9. maí nk.verður rafmagnslaust í Grindavík frá kl. 8 um morguninn. Áætlað er að rafmagnsleysið muni vara í um fimmtán klukkustundir.


Undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir við að koma stofnstrengjum frá Svartsengi til Grindavíkur úr jörðu yfir í loftlínu til að fyrirbyggja mögulegt þjónusturof ef hraun flæðir frekar á umræddu svæði. Er með þessu verið að lengja loftlínu sem lögð var yfir hraunið úr eldgosinu við Grindavík þann 14. janúar sl. í um kílómeters leið í átt að Svartsengi. Reynslan sýnir að á tímum náttúruhamfara reynist betur að hafa strengi í loftlínu en jörðu og er þetta liður í því að bæta raforkuöryggi í Grindavík á tímum náttúruhamfara.

Uppfært: Framkvæmdin gekk vel og var rafmagn komið aftur á bæinn rúmlega 21:30. 

 

Ljósmynd: HS Veitur / ozzo