Heitavatnslokun fimmtudaginn 31. ágúst nk.

Vegna viðhaldsvinnu HS Orku við Njarðvíkuræð verður lokað fyrir heitt vatn á Ásbrú og í Höfnum fimmtudaginn 31. ágúst nk. kl. 12.
Áætlað er að heitt vatn verði komið aftur á um kl. 20.

 

Einnig er möguleiki á heitavatnsleysi vegna þessa í Suðurnesjabæ, Reykjanesbæ, við Keflavíkurflugvöll og í Vogum milli kl. 16 og 20.

 

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.