Rafmagnslaust útfrá dreifistöð sem stendur við Ægisgötu í Grindavík aðfaranótt 23.mars næstkomandi

Vegna vinnu í DRE-105 við Ægisgötu í Grindavík, aðfaranótt 23.mars er óhjákvæmilegt að viðskiptavinir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur.

Viðskiptavinir á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) hafa fengið senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum) og tölvupósti sem hafa skráð tölvupóstfang.

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti aðfaranótt fimmtudags 23.mars og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 06:00 að morgni 23.mars

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.