Rafmagnslaust í Grindavík aðfaranótt 19.des

Vegna vinnu við dreifikerfið í Grindavík, aðfaranótt 19.desember er óhjákvæmilegt að viðskiptavinir sem eru á neðangreindu svæði verði án rafmagns á meðan vinnu stendur.

Viðskiptavinir á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) hafa fengið senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum) og tölvupósti sem hafa skráð tölvupóstfang.

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 22:00 þann 18.desember og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 01:00 þann 19.desember

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.