Chat with us, powered by LiveChat
Fara á efnissvæði

Mælaskipti

Wezcs42q.Jzr

Góðan dag, Á næstu vikum er fyrirhugað að skipta um rafmagnsmælinn hjá þér. Ástæðan fyrir mælaskiptunum er að við erum að uppfæra í nýjustu kynslóð mæla vegna lokunar á 2G/3G kerfum. Rafverktakar á vegum Raf Sparra munu sjá um framkvæmd verksins fyrir okkur og bera þeir allir verktakaskírteini frá HS Veitum. Þeir munu hafa samband við þig til að finna tíma sem hentar best fyrir mælaskiptin. Ef þú ert nú þegar kominn með nýjustu kynslóð mælis verður ekki haft samband við þig. Verkið tekur um 20 mínútur fyrir hvern mæli og verður rafmagnslaust á meðan mælaskiptin fara fram. Ef þú hefur frekari spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 422-5200 eða senda tölvupóst á hsveitur@hsveitur.is. Takk fyrir. HS Veitur

Sjá á korti