Við biðjum íbúa og fyrirtæki á svæðinu að gera ráðstafanir í samræmi við þetta og sýna þolinmæði á meðan unnið er að viðgerðinni.
Starfsfólk HS Veitna vinnur að því að ljúka verkinu eins fljótt og örugglega og hægt er.
Fylgst verður með framvindu og upplýsingar uppfærðar á hsveitur.is og samfélagsmiðlum HS Veitna.
Við þökkum ykkur fyrir þolinmæðina og skilninginn.
Uppfærslur
- Framkvæmdin gekk vel og var hleypt heitu vatni aftur á kerfið um kl. 02. Í kjölfarið var farið í að ná upp þrýstingi aftur á kerfið. Voru allir viðskiptavinir komnir með heitt vatn aftur í morgunsárið.