Aðgerðin hefst um kl. 6 að morgni og gert er ráð fyrir að lokað verði fyrir heita vatnið á milli kl. 7 og 8.
Um er að ræða viðamikið verkefni og áætlað er að aðgerðin taki um 12 klukkustundir í heild. Ef allt gengur samkvæmt áætlun má gera ráð fyrir að heitt vatn fari að berast aftur í kringum kvöldmatarleytið. Búast þarf þó við að framkvæmdir geti dregist fram á kvöld.
Við biðjum viðskiptavini á svæðinu að gera ráðstafanir vegna lokunarinnar.
Athugið: Það getur tekið tíma fyrir fullan þrýsting og hita að komast aftur á kerfið eftir að vatni hefur verið hleypt á.
Starfsfólk okkar mun vinna að viðgerðinni eins hratt og örugglega og kostur er.
Við þökkum íbúum fyrir þolinmæðina og skilninginn á meðan vinnu stendur.