Vegna viðhaldsvinnu í dreifistöð við Garðbraut í Suðurnesjabæ (Garði), mánudaginn. 26.10.20 er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur. Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).
Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 (miðnætti) og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi 27.10.20