UPPFÆRT: 17:34 Vinnu lokið allir ættu að vera komnir með rafmagn.
UPPFÆRT: 16:51 Tafir eru á spennusetningu en gert er ráð fyrir að rafmagn komi á að nýju kl 18:00.
Vegna viðhaldsvinnu í dreifistöð við Bjarkardal í Reykjanesbæ í dag 17.02.21 er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur.
Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).
Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 13:00 í dag 17.02.21 og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 17:00 sama dag.