Rafmagnslaust vegna vinnu í dreifistöð í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík

Vegna viðhaldsvinnu í DRE-109 í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, aðfaranótt 11.05.21 er óhjákvæmilegt að  fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur. Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 06:00 þann 11.05.21

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum okkar.