Fara á efnissvæði

Mannauður og innri þjónusta /   2025 Mannauður Öryggis- og umhverfismál Upplýsingatækni Gæða- og skjalamál

2025

Í byrjun árs 2025 var nýtt svið mannauðs og innri þjónustu stofnað hjá HS Veitum samhliða innleiðingu nýs skipurits og skipulagsbreytinga. Með breytingunum var lögð aukin áhersla á heildstæða þjónustu við starfsfólk og markvissan stuðning við kjarnastarfsemi fyrirtækisins.

Hlutverk sviðsins er að efla mannauð, styrkja innri þjónustu, velferð og faglega umgjörð. Með stofnun sviðsins er markmiðið að treysta stoðir fyrirtækisins til framtíðar og styrkja stöðu HS Veitna sem eftirsóttan og ábyrgan vinnustað.

Mannauður

E5A5799

HS Veitur leggja ríka áherslu á að laða að og halda í hæft og metnaðarfullt starfsfólk. Mannauður fyrirtækisins er dýrmætasta auðlindin og lykilforsenda árangurs og stöðugrar þróunar. Markvisst er unnið að því að efla þekkingu, færni og vellíðan starfsfólks ásamt því að skapa starfsumhverfi sem styður við faglegan vöxt og ábyrgð.

Í byrjun árs 2025 störfuðu 87 starfsmenn hjá HS Veitum á fjórum starfsstöðvum. Meðalaldur starfsfólks var 52,2 ár og meðalstarfsaldur 12,6 ár, sem endurspeglar bæði mikinn stöðugleika og uppsafnaða reynslu innan fyrirtækisins. Á sama tíma kallar aldurssamsetning á markvissa nýliðun og þekkingaryfirfærslu til að tryggja samfellu í starfseminni til framtíðar.

Kynjaskipting starfsfólks var 70 karlar og 17 konur. Markvisst er unnið að því að stuðla að fjölbreytni og jafnrétti í samræmi við stefnu fyrirtækisins.

Á árinu 2025 létu 7 starfsmenn af störfum en 12 nýjir hófu störf hjá fyrirtækinu. Starfsmannavelta var 8% á árinu. Nýliðun ársins styður við endurnýjun mannauðs og styrkir þekkingargrunn fyrirtækisins til framtíðar.
Þrettán sumarstarfsmenn störfuðu hjá HS Veitum yfir sumartímann við fjölbreytt verkefni á öllum starfssviðum. Sumarstörf eru mikilvægur þáttur í að kynna starfsemi fyrirtækisins og skapa tækifæri fyrir framtíðarstarfsfólk.
Markvisst var fylgst með líðan starfsfólks með reglulegri vinnustaðagreiningu. Niðurstöður voru rýndar og unnið að umbótum með það að markmiði að efla starfsánægju, traust og samheldni. Starfsánægja hjá HS Veitum mælist almennt yfir meðallagi í samanburði við íslensk fyrirtæki, en jafnframt er lögð áhersla á stöðugar umbætur og markvissa eftirfylgni.

Meðalveikindahlutfall hjá HS Veitum árið 2025 var 2,6%. Það telst hóflegt í samanburði við almenn viðmið og endurspeglar áherslu fyrirtækisins á heilsu, velferð og gott starfsumhverfi. Lágt veikindahlutfall styður jafnframt við stöðugleika í rekstri og samfellu í þjónustu.

 

Jafnlaunamál

HS Veitur hafa frá árinu 2020 uppfyllt kröfur jafnlaunavottunar. Launamunur kynja og hlutfall launa forstjóra miðað við miðgildi launa er undir þeim viðmiðum sem fyrirtækið hefur sett sér.

Innleiðing nýs skipulags

Í kjölfar umfangsmikillar stefnumótunarvinnu sem fór fram á árinu 2024 var nýtt skipulag HS Veitna innleitt í byjun árs 2025. Skipulagsbreytingarnar byggja á heildstæðri greiningu á starfsemi fyrirtækisins, virkri þátttöku starfsfólks og skýrri framtíðarsýn um hvernig best sé að mæta breyttum kröfum starfsumhverfisins og væntingum hagaðila, viðskiptavina, starfsfólks, eigenda og samfélagsins.

Markmið nýs skipulags er að styrkja kjarnastarfsemi HS Veitna, bæta skilvirkni og auka gæði þjónustu, bæði inn á við og út á við. Skipulagið styður við skýrari ábyrgð, betra flæði verkefna og markvissari ákvarðanatöku þvert á svið, auk þess sem lögð er aukin áhersla á stafræna þróun og samhæfðari innri ferla.

Inn á við endurspeglar skipulagið aukna áherslu á þróun mannauðs, árangur, eftirsóknarverða vinnustaðarmenningu og í ríkara mæli verkefnamiðaða nálgun. Skipulagsbreytingarnar skapa þannig betri forsendur fyrir samvinnu milli eininga og auka sveigjanleika fyrirtækisins til að bregðast við síbreytilegu starfsumhverfi.

Innleiðing nýs skipulags markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun HS Veitna og leggur traustan grunn að markvissum umbótum og sjálfbærum rekstri til framtíðar.

Hátt í 400 umbótatillögur bárust frá starfsfólki í stefnumótunarvinnunni. Tillögurnar hafa verið flokkaðar eftir sviðum og er vinna við forgangsröðun og innleiðingu þeirra hafin, með það að markmiði að tryggja að þekking, reynsla og hugmyndir starfsfólks nýtist sem best í áframhaldandi þróun starfseminnar.

Öryggis- og umhverfismál

Öryggismál

Öryggismál gegndu áfram lykilhlutverki í starfsemi HS Veitna á árinu 2025. Óhefðbundnar og síbreytilegar aðstæður í tengslum við jarðvá á Reykjanesi auk annarra fjölþáttaógna hafa kallað á aukna viðbragðsgetu, endurskoðun verklags og nýja nálgun við úrlausn daglegra verkefna.

Á árinu var unnið markvisst að endurskoðun og uppfærslu á áhættumati og viðbragðsáætlunum auk leiðbeininga og fræðsluefnis. LMP-verkefnið (læsa, merkja, prófa) var að fullu innleitt. Verkefnið felur í sér staðlaðan læsingarferil fyrir háskalega orku og er ætlað að fyrirbyggja slys og mistök og efla þannig öryggi starfsfólks. Þá var unnið að uppfærðri öryggis- og umhverfishandbók fyrir verktaka.

Áfram var lögð mikil áhersla á „staldraðu við“, sem felst í því að starfsfólk framkvæmir áhættumat fyrir hvert verk til að fyrirbyggja slys og viðhalda sterkri öryggisvitund.

Neyðarstjórn var virk á árinu og voru haldnir fimm formlegir fundir auk funda með helstu viðbragðsaðilum. Í neyðarstjórn situr framkvæmdastjórn ásamt fagfólki þvert á fyrirtækið. HS Veitur tóku jafnframt þátt í árlegri netöryggisæfingu neyðarstjórnunar raforkukerfisins (NSR) ásamt orku- og veitufyrirtækjum, stórnotendum, opinberum aðilum og CERT-IS og KraftCERT. Markmið æfingarinnar var að þjálfa viðbrögð stjórnenda við netöryggisatvikum og reyna á samskipti milli lykilaðila.

Árangur í öryggismálum var góður á árinu. Alls voru 15 atvik skráð í atvikaskráningakerfi HS Veitna árið 2025. Til samanburðar hefur meðalfjöldi skráðra atvika síðustu fimm ár verið 27 á ári. Þar með hefur orðið veruleg fækkun skráðra atvika síðustu tvö ár.

Umhverfismál

HS Veitur leggja ríka áherslu á að lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda. Losun CO₂ frá bifreiðum fyrirtækisins hefur minnkað jafnt og þétt með innleiðingu rafmagnsbíla í stað bifreiða sem knúnar eru jarðefnaeldsneyti.

Losun vegna orkuframleiðslu var meiri en árið á undan. Skýringar á því liggja meðal annars í aukinni keyrslu díselvéla í kyndistöð í Vestmannaeyjum vegna skerðingar á orkuafhendingu frá Landsneti og Landsvirkjun. Þá þurfti jafnframt að keyra díselvélar á meðan tenging nýs sæstrengs stóð yfir þar sem flutningsgeta eldri sæstrengs var takmörkuð.

Upplýsingatækni

Rekstur upplýsingatæknikerfa HS Veitna gekk vel á árinu og lítið var um óvæntar truflanir eða bilanir. Unnið var að reglubundnu viðhaldi, endurbótum og viðbótum við tölvubúnað eftir þörfum.

Tölvukerfi fyrirtækisins eru rekin miðlægt og að hluta til í skýinu. Til upplýsingakerfa telst allur tölvuhugbúnaður, tölvuvélbúnaður og símabúnaður fyrirtækisins að undanskildum iðntölvustýringum.

Allir netþjónar fyrirtækisins eru nú komnir í hýsingu og rekstur utan vinnustöðva HS Veitna að undanskildum örfáum netþjónum sem nauðsynlegt er að halda innan vinnustöðva vegna mögulegra truflana á nettengingum.

Á árinu var unnið með ráðgjöfum að betrumbótum og öryggisherðingu upplýsingakerfa og verður sú vinna áfram forgangsverkefni. Mat á öryggisviðbrögðum fyrirtækisins og umsögn sérfræðings gefa til kynna að HS Veitur hafi náð góðum árangri á þessu sviði. Þá er jafnframt verið að skoða frekari umbætur á vöktun umhverfa á mikilvægum hnútum í dreifikerfi veitunnar.

Gæða- og skjalamál

HS Veitur eru samfélagslega ábyrgt fyrirtæki sem færir notendum sínum nútímalífsgæði með öruggu aðgengi að tærum og endurnýjanlegum auðlindum allan ársins hring. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á stöðugar umbætur og starfar í fullu samræmi við lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem gerðar eru til starfseminnar.

Árlega eru gerðar mælingar í rafmagnsdreifikerfinu til að staðfesta að afhendingargæði séu innan skilgreindra vikmarka samkvæmt stöðlum og reglugerðum. HS Veitur reka vottað gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 og hlutu endurnýjaða vottun frá fyrirtækinu Versa-vottun í janúar 2026. Fyrirtækið hefur jafnframt hlotið jafnlaunavottun samkvæmt ÍST 85.

HS Veitur fylgjast með gæðum neysluvatns með sífelldum mælingum í vatnsbólum. Heilbrigðiseftirlit á starfssvæðum annast reglubundnar sýnatökur bæði við vatnsból og á skilgreindum stöðum innan dreifikerfisins. Engin frávik komu fram í sýnatökum á árinu samkvæmt reglugerð nr. 536/2001. Niðurstöður eru aðgengilegar á heimasíðu fyrirtækisins.

Efnagreining á heitavatnsframleiðslu fyrir Suðurnes er í höndum HS Orku. HS Veitur framkvæma jafnframt sífelldar mælingar á súrefnisinnihaldi vatns í dælustöðvum á Fitjum, Mánagrund og í Dalshverfi sem hluta af stöðugum umbótum á gæðum þjónustu til viðskiptavina.