Fara á efnissvæði

Fjármál /   Starfsemin Helstu verkefni Rekstur Innkaup og birgðir

Starfsemin

Fjármálasvið HS Veitna vinnur þvert á starfsemi fyrirtækisins við fjárstýringu, reikningsskil og fjárhagslega eftirfylgni. Rekstur fyrirtækisins gekk vel á árinu 2025 og er fjárhagsstaða þess sterk þrátt fyrir áskoranir á borð við jarðhræringar á Reykjanesi. Áhersla var lögð á áframhaldandi uppbyggingu innviða, skilvirka fjárstýringu og aukna gagnanýtingu í rekstri.

Á fjármálaeiningu HS Veitna starfa tveir sérfræðingar í fjármálum, aðalgjaldkeri, sérfræðingur í orkureikningagerð og framkvæmdastjóri fjármála.

Helstu verkefni

Helstu verkefni einingarinnar eru fjárstýring, fjárhagsáætlanagerð, reikningsskil, reikningagerð, móttaka reikninga, greiðslumóttaka og afgreiðsla greiðslna, auk annarra almennra verkefna á sviði fjármála. Lögð er áhersla á að allir reikningar sem berast félaginu séu lesnir inn rafrænt og daglega settir í samþykktarferli. Markmiðið er að bókhald félagsins sé fært eins nálægt rauntíma og kostur er.

Rekstur

Fjármögnun

HS Veitur hf. héldu lokað útboð í desember 2025 á nýjum skuldabréfaflokki, HSVE 45 1218. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 5.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,90%. Kvika banki hf. hafði umsjón með útgáfu og útboði skuldabréfanna.

HS Veitur sendu í lok nóvember bótakröfu til Náttúruhamfaratryggingar Íslands vegna tjóna sem orðið hafa við Svartsengi og í Grindavík. Krafan nam 348,5 m.kr. Fyrir árslok barst uppgjör frá NTÍ og greiðsla að fjárhæð 169,5 m.kr., aðallega vegna tjóns á stofnæðum rafmagns- og heitavatnskerfa til Grindavíkur.

Málið er enn til vinnslu og stefnt er að því að ljúka uppgjöri eins fljótt og unnt er. Óljóst er hver endanleg niðurstaða verður og búast má við ágreiningi um tiltekna þætti þess. HS Veitur hafa jafnframt sett fram fyrirvara um að eftir sé að semja um bætur vegna tjóns á neðanjarðarlögnum sem enn hefur ekki komið fram, auk mögulegs tjóns sem kann að verða á svæðinu við frekari atburði.

Fjárfestingar ársins námu samtals 2.761 m.kr. samanborið við 1.949 m.kr. árið 2024. Fjárfestingaáætlun fyrir árið 2026 nemur 4.232 m.kr. Nánar er fjallað um fjárfestingar félagsins í umfjöllun um veitukerfin.

Ökutæki

Fjármál halda utan um ökutæki fyrirtækisins. 

Innkaup og birgðir

Innkaup

Á innkaupadeild starfar deildarstjóri innkaupa- og birgðadeildar, auk framkvæmdastjóra fjármála sem kemur að verkefnum. Deildin vinnur náið með öðrum rekstrareiningum fyrirtækisins og gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja skilvirk og hagkvæm innkaup fyrir starfsemi HS Veitna.

HS Veitur nota rafrænt beiðnakerfi við innkaup. Lausnin hefur reynst vel, einfaldar eftirlit með innkaupum og eykur skilvirkni í ferlinu, auk þess sem hún dregur úr pappírsnotkun.

Helstu verkefni deildarinnar eru innkaup, bæði innanlands og erlendis, samskipti við birgja, verðkannanir og framkvæmd útboða þegar við á. Innlend innkaup eru langstærsti hluti starfseminnar og nema tæplega 98% af heildarinnkaupum deildarinnar. Á árinu voru erlendar pantanir 26 talsins en innlendar pantanir 1.262.

 

Birgðir

Á birgðadeild starfa fimm birgðaverðir í fullu starfi og einn í hlutastarfi. Birgðageymslur HS Veitna eru fjórar talsins og staðsettar í Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum og í Árborg.

Afgreiðslur úr birgðageymslum HS Veitna á árinu 2025 voru alls 8.993, sem er rúmlega 5% samdráttur frá fyrra ári. 

Bókfært verð vörubirgða HS Veitna í árslok nam um 830 m.kr., samanborið við 929 m.kr. í upphafi árs, sem jafngildir um 10% samdrætti.

Áfram var unnið að því að bæta eftirlit með hámarks- og lágmarksbirgðum í birgðakerfi fyrirtækisins. Kerfið er í stöðugri þróun og auðveldar birgðavörðum að halda betri yfirsýn yfir birgðahaldið.
Birgðatalningar voru framkvæmdar á öllum lagerum félagsins og áfram er unnið að förgun á gömlu og úreltu efni. Samhliða því stendur yfir vinna við endurbætur og endurskipulagningu birgðageymslunnar í Reykjanesbæ.

Sjálfvirknivæðing í lagerstarfsemi HS Veitna heldur áfram. Á árinu var þróað skannakerfi sem nýtist við afgreiðslu og útskrift vara úr lager, sem eykur nákvæmni í skráningu og dregur úr mistökum í birgðahaldi.
HS Veitur eiga og reka lagerhúsnæði við Fitjabraut 20–22 auk útilagers við Fitjabraut 32 og Fitjabakka 3, sem eru samliggjandi lóðir með samtals um 5.600 m² svæði.

Seinni hluta árs 2025 keypti félagið lóðina Fitjabraut 10 sem liggur að núverandi lagerhúsnæði félagsins. Lóðin er 4.925 m² að stærð og á henni stendur 889,5 m² stálgrindarskemma sem hentar vel til að hýsa stærri lagervörur sem þarf að verja fyrir veðri og sólarljósi.

Með þessum kaupum hefur HS Veitur tryggt sér hentuga framtíðarstaðsetningu fyrir útilager félagsins.